Ferðasögur Daníel Eðvaldsson Ferðasögur Daníel Eðvaldsson

90 ára afmælishátíð Round Table – ferðasaga Guttorms

Að morgni föstudagsins 10. mars 2017 hófu 6 ferskir teiblarar (Landstjórn ásamt Guðjóni Andra og undirrituðum) ferð sína í 90 ára afmælispartý Round Table sem var haldin í Winchester og Southampton. Þessari frábæru helgi var startað með Sjampó í Saga lounge sem setti óneitanlega tóninn fyrir helgina.

RT-hopur-90ara.jpg

Að morgni föstudagsins 10. mars 2017 hófu 6 ferskir teiblarar (Landstjórn ásamt Guðjóni Andra og undirrituðum) ferð sína í 90 ára afmælispartý Round Table sem var haldin í Winchester og Southampton. Þessari frábæru helgi var startað með Sjampó í Saga lounge sem setti óneitanlega tóninn fyrir helgina.

Þegar til Gatwick var komið var planið að hitta Brian, danskan ofurteiblara það gekk hálf ílla en við fundum hinsvegar bar á flugvellinum sem bruggar sitt eigið gin. Þessi staður ætti að fá Michelin stjörnu ef slíkt væri hægt, klárlega þess virði að stoppa þar.

Eftir nokkra klukkutíma á Gatwick var haldið í 2 tíma lestarferð niður til Southampton og leigubíll tekinn restina af leiðinni. Þegar á hótelið var komið tóku á móti okkur nokkrir hressir Íslendingar. Eftir að menn voru búnir að losa sig við töskur og taka út hótelbarinn var haldið á Knæpu sem menn höfðu heyrt að yrði full af teiblurum, það reyndist rétt og þar var teiblað fram eftir nóttu.

Á laugardeginum þegar var búið að starta mannskapnum var þrammað upp í The Great Hall þar fyrir utan fengum við armbönd fyrir partý kvöldsins og þennan glæsilega pening, þegar inn var komið blasti við manni borðið sem þið sjáið á fyrstu myndinni í bakgrunninum, það var mögnuð upplifun að vera kominn þarna í vöggu Round table. Eftir að hafa spjallað við mennina og tekið tvö lög fyrir útlendingana héldu nokkrir íslendingar á topp steikhús bæjarins og tóku staðinn yfir.

Eftir matinn var haldið í hótel garðinn þar sátu menn í vor blíðunni og spjölluðu við Dani, Skota og Hollendinga. Þegar það var búið að þurrka upp barinn og reyna ýmsa samningatækni til að komast í gufu eða nudd var haldið til Southampton í house partýi-ið, Geggjaðir dj-ar, ódýrir drykkir og góður félagskapur einkenndi kvöldið, tveir íslendingar voru teknir inn í Buffaló regluna að partýinu loknu var haldið á klúbba í Southampton og svo aftur á Alfies í Winchester

Sunnudagurinn var svo heimferð, við tókum leigubíl upp í London þar tvístraðist hópurinn einhverjir fóru á leik, en ég, Guðjón Andri og Brian ákváðum að rölta aðeins um við kíktum aðeins á Betu, hún biður að heilsa, þegar uppá flugvöll var komið, var ákveðið að fara aftur á Gin barinn góða áður en skilið var við Bretland.

Þetta var mín fyrsta ferð út í alþjóðlegt teibl og ég skil vel afhverju reyndari menn eru alltaf að segja nýliðum og þeim sem ekki enn hafa farið að drífa sig, þetta er upplifun sem menn mega ekki missa af.

Til ykkar sem voruð þarna úti með mér þakkir fyrir frábæra ferð !


Kær Kveðja, þar til næst

Guttormur Ingi RT-6

Read More
Daníel Eðvaldsson Daníel Eðvaldsson

Ferðasaga RT-11, Skotland 2016

Það var í maí mánuði sem að Roundtable 11 menn lögðu land undir fót. Með í för voru 2 eldriborgarar eða það sem þeir vilja sjálfir láta kalla sig Old tablers. Þessi frábæri hópur var skipaður mönnum allastaðar að úr samfélaginu. Þessir ungumenn og bráðmyndalegu peyjar úr RT-11 ákvaðu að skella sér alla leið til Aberdeen í Skotalandi, nánari staðsetning Westhill.

ferdasaga-RT11_2-e1485778821970.jpg

Það var í maí mánuði sem að Roundtable 11 menn lögðu land undir fót. Með í för voru 2 eldriborgarar eða það sem þeir vilja sjálfir láta kalla sig Old tablers. Þessi frábæri hópur var skipaður mönnum allastaðar að úr samfélaginu

Þetta voru, Sindri Valtýrsson, Arnór Arnórsson, Hafþór Snorrasson, Guðjón Örn Sigtrygggson, Sigurður Árnasson, Jóhann Þorvaldsson.

Þessir ungumenn og bráðmyndalegu peyjar úr RT-11 ákvaðu að skella sér alla leið til Aberdeen í Skotalandi, nánari staðsetning Westhill.

Farið var með Herjólfi snemma dags og ákveðið að fara í sumarbústað þangað til við ættum að mæta út í SunnyKef, sem og við gerðum. Jojo var sá skynsami og fékk það hlutverk að drekka ekki bjór í pottinum og keyra okkur upp á flugvöll. Já nú haldi þið að ég sé orðin fullur en svo er ekki, Jojo var klárlega maðurinn sem kom okkur á leiðarenda og þökkum við peyjarnir honum fyrir frábæran akstur upp á völl.

Þegar við vorum komnir upp á flugvöll lá það ljóst fyrir að undirritaður var orðin þunnur og klukkan ekki orðin 03:00 og langur dagur framundan,

Svo kom kallið, nú skal haldið upp í vél. Spenningurinn í mannskapnum var svo mikill að Hafþór Snorrasson ákvað að kaupa súrdeigsbrauð og kæfu til að hafa í fluginu.

En þegar við komum út úr rananum og inn í strætó komust við að því að við vorum að fara að fljúga á miklu minni vél en við höfðum órað fyrir, en flugið var bara mjög gott þrátt fyrir allt sem á undan var gengið. Haffi kláraði súrdeigsbrauðið sitt og kæfuna, á meðan aðrir voru í því að fá sér smá malt.

Þegar við lentum á Skotalandi voru menn mættir upp á flugvöll til að sækja okkur. Þarna sáum ég strax að ég væri að eignast góða félaga á erlendri grundu.

Fyrsti dagurin var notaður til að þræða skemmtihús og sinna skyldum sínum fyrir konur og börn niðri miðbæ Aberdeen. Því jú eins og alvöru Eyjamönnum sæmir gátum við ekki mætt seint svo við ákváðum að koma degi á undan.

Gekk allt eins og í sögu þangað til Jojo var orðinn eftirlýstur í Skotlandi, fyrir þá sem vilja vita af hverju hann var eftirlýstur þá verði bara ræða það við hann.

Þegar við vorum aftur komnir upp í Westhill var ákveðið að skella sér á bæjar skemmtistaðinn.
Við vorum varla komnir inn þegar eigandinn ákvað að henda okkur út. Enn vitum við ekki af hverju.

Dagana eftir tóku við frábærir dagar þar sem við eignuðumst góða vini hvaðanæva að úr heiminum. Við tókum strax eftir því að við vorum vel liðnir og tókum stundum virkan þátt í að mynda stemmningu, meðal annas með því að vera með fullt af íslenskum húfum, mat og drykk. Enda lá það strax fyrir að þeir vildu að við myndum halda númermót 2018. Við vorum ekki mikið að velta því fyrir okkur enda ný byrjarðir að vinna fyrir ematm2017.

Svo kom að því að fulltrúar allra landa tóku saman fund. Það lá ljóst fyrir að þar voru menn búnir að ræða sig saman á að ísland rt-11 verði með númerafund 2018. Ég og Sindri ákvaðum að þetta yrði bara tæklað þannig að við yrðum með númermót 2018 fyrst við vorum byrjaðir á þessari alþjóðafundagleði.

Það er rosalega erfitt að segja í pistli frá þessu öllu því maður veit ekki hvar maður á að enda.

Ég ætla þó að enda á þessu á þeim orðum

Ef þú ert ekki búin að sækja erlendan fund þá ráðlegg ég þér að gera það sem fyrst því þú veist ekki afhverju þú er að missa af.

Guðjón Örn Sigtryggsson

Formaður Roundtable 11

ferdasaga-RT11.jpg
Read More
Ferðasögur Daníel Eðvaldsson Ferðasögur Daníel Eðvaldsson

AGM SVÍÞJÓÐ 2016

Fimmtudaginn 19. maí 2016 héldu tveir galvaskir sexu félagar, (undirritaður og Guðjón Andri) af stað á AGM í Svíþjóð. Hófst ferðin með morgunflugi til Kaupmannahafnar og þar hoppað í lest þar sem leið lá til Riksmöte í Varnamo Wild Wild West. Lestarferðin tók ca. 3 klst og nokkra bjóra.

Gummitr6_7-e1475762564836.jpg

Fimmtudaginn 19. maí 2016 héldu tveir galvaskir sexu félagar, (undirritaður og Guðjón Andri) af stað á AGM í Svíþjóð. Hófst ferðin með morgunflugi til Kaupmannahafnar og þar hoppað í lest þar sem leið lá til Riksmöte í Varnamo Wild Wild West. Lestarferðin tók ca. 3 klst og nokkra bjóra.

Komið var á áfangastað seinni part fimmtudags, tékkuðum við okkur inn á hótel. Við hittum þar marga góða Round Table félaga. Var okkur félugunum boðið í forseta kvöldverð, þar voru saman komnir formenn RT klúbba í Svíþjóð ásamt mökum og nokkrir vel valdir erlendir gestir. Þar var partý fram eftir nóttu.

Föstudagsmorguninn skoðuðum við okkur aðeins um í þessu frábæra kántrý þorpi sem innihélt veitingastaði, minjagripaverslun, hótel, risa tjaldstæði, búngalóa og allir lifðu sig inn í þetta umhverfi, hver í sínum búningi. Um miðjan daginn var strandpartý sem við kíktum í og röltum á milli tjalda og hjólhýsa. Um kvöldið var hópnum sem taldi 1400 manns skipt í nokkur partý þar sem við fengum mexikanskan mat.

Laugardagsmorgun var hefðbundinn aðalfundur þeirra Svía sem fór fram á ensku í upphafi fyrir erlenda gesti, gjafir voru veittar og eftir það var skipt yfir í sænskuna og yfirgáfum við þá fundinn. Röltum við um og heimsóttum dönsku, norsku og suður-afrísku vini okkar, endaði svo dagurinn með frábærum galadinner sem byrjaði með fordrykk í garðinum fyrir framan hótelið okkar. Í kvöldverð voru saman voru komnir 1400 RT og LC félagar.

Sunnudagur var heimferðardagur, áttum við pantað í lestina en fengum far í bíl með RT félaga sem býr í Malmö ásamt David DS frá Belgíu. Tókum smá rölt um miðbæ Malmö og kíktum á kaffihús, þrír þreyttir RT félagar. Tókum lestina svo yfir til Kaupmannahafnar og svo flug til Keflavíkur. Frábær helgi í góðum félagsskap og hvet ég alla sem ekki hafa farið á AGM erlendis að skella sér á eitt slíkt, fengum við frábærar móttökur.

Kær kveðja, sjáumst í Tablinu í vetur,

Guðmundur Jóh RT-6

Read More
Ferðasögur Daníel Eðvaldsson Ferðasögur Daníel Eðvaldsson

Ferðasaga RT7 – Euromeeting Lyngby 2016

Tveir góðir sjöumenn (annar reyndar úr RT4 en fer alls ekki á Euromeeting nema hjá sjöunni) héldu af stað á Euromeeting í Lyngby í Danaveldi þann 12. maí 2016. Félagarnir hittust á Reykjavíkurflugvelli þar sem þeir voru pikkaðir upp af meistara Jóa úr RT2. Hann bauðst til að skutla okkur til Keflavíkur þar sem önnur plön höfðu brugðist. Snætt var í Keflavík og ýmislegt rætt áður en Jói hélt aftur í bæinn. Nokkrir kaldir teknir á samþykktum bar í Keflavík áður en við tókum blund í nokkra klukkutíma.

Tveir góðir sjöumenn (annar reyndar úr RT4 en fer alls ekki á Euromeeting nema hjá sjöunni) héldu af stað á Euromeeting í Lyngby í Danaveldi þann 12. maí 2016. Félagarnir hittust á Reykjavíkurflugvelli þar sem þeir voru pikkaðir upp af meistara Jóa úr RT2. Hann bauðst til að skutla okkur til Keflavíkur þar sem önnur plön höfðu brugðist. Snætt var í Keflavík og ýmislegt rætt áður en Jói hélt aftur í bæinn. Nokkrir kaldir teknir á samþykktum bar í Keflavík áður en við tókum blund í nokkra klukkutíma.

Við mættum snemma á KEF airport og var flogið til Köben með WOW air eftir eðlilegar seinkanir hjá þeim. Danirnir tóku á móti okkur á flugvellinum að sjálfsögðu með nokkra kassa af Tuborg grön sem við áttum alveg eftir að fá að smakka aðeins á yfir helgina ásamt öðru dönsku öli. Okkur, ásamt því liði sem var að mæta á svipuðum tíma var smalað upp í rútu og haldið á hótelið í Lyngby sem er í sveitinni rétt norður af Kaupmannahöfn. Eftir að við komum okkur fyrir og tekið stöðuna á liðinu á hótelbarnum var haldið í heimapartý þar sem vel var gert við sig í mat og drykk. Að loknum heimapartýum var öllu liðinu svo stemmt saman aftur á hótelbarnum þar sem mikið var dansað og partýinu haldið áfram fram eftir nóttu.

Vaknað var snemma á laugardagsmorgni og haldið í ráðhúsið þar sem skálað var við frú borgarstjórann í appelsínusafa og svo gengið um götur Lyngby. Síðan var svo haldið í bátsferð og aftur á hótelið þar sem undirbúningur hófst fyrir Bannerlunch.

Við Fengum frábært veður og aðeins meiri hita en við á Íslandi höfðum haft dagana á undan. Bannerlunch hjá dönunum tókst frábærlega og voru skemmtiatriðin flest hver mjög góð þetta árið. Pop star Jón Ingi fór á kostum og á endanum þurfti hlutkesti til þess að skera úr um það hvort við eða Svíarnir hefðum átt besta atriðið, sem því miður féll það með Svíunum. Old tablers partýið um kvöldið var haldið á svakalegu setri sem var í eigu dansks fasteignamógúls, frábær matur og nóg af fljótandi veigum. Flott teibl, mikið spjallað, dansað en sumir sofnuðu yfir eurovision!!

Aftur var vaknað snemma á sunnudegi, það var alveg merkilegt hvað félagarnir náðu að halda áætlun. Haldið var í stutta gönguferð undir leiðsögn og gengið á „fjall“ í nágrenni hótelsins. Já alveg merkilegt hvað Danir kalla „fjöll“. Næst var það danskur hádegismatur sem var að sjálfsögðu danskar pylsur og bjór, mjög góðar pylsur samt og bjórinn ekki slæmur. Leikirnir sem voru næstir á dagskrá voru færðir inn þar sem spáð hafði verið mjög mikilli rigningu. Rifjaðir voru upp gamlir góðir taktar í pool og borðtennis. Um kvöldið var svo Gala dinner sem haldinn var inni í Kaupmannahöfn. Morten góður félagi okkar frá Noregi var kosinn trúðurinn, það gladdi okkur mikið. Flott set up á Gala hjá Dönunum þar sem flakkað var milli hæða í sama húsinu í fordrykk, gala dinner og svo á ball þar sem mætt var live band sem spilaði mikla stuðtónlist og var mikið dansað og skemmt sér. Einhver missti úr buxunum á stigapallinn, alveg magnað kvöld.

Farewell brunch á mánudagsmorgni, aftur snemma og svo rúta á flugvöllinn eftir að búið var að kveðja liðið. Við tók erfið bið eftir fluginu heim og líklega lengsta og erfiðasta flugvallarröð sem við höfum upplifað, takk WOW air. Félagarnir þó mjög ánægðir með frábæra ferð.

Níels og Jón Ingi

Read More
Daníel Eðvaldsson Daníel Eðvaldsson

Í veiði með Eistum

Dagana 20.-22. ágúst sl. tóku nokkrir fimmu menn, einn fjarki og tveir Eistar forskot á sæluna og skruppu saman í veiði. Í heildina var þetta þrettán mann hópur, jafnt reyndra sem óreyndra veiðimanna. Stefnan var sett á Reykjadalsá.

mariulax.jpg

Dagana 20.-22. ágúst sl. tóku nokkrir fimmu menn, einn fjarki og tveir Eistar forskot á sæluna og skruppu saman í veiði. Í heildina var þetta þrettán mann hópur, jafnt reyndra sem óreyndra veiðimanna. Stefnan var sett á Reykjadalsá.

Eftir stutt stopp í Leirunesti brunaði hópurinn af stað og kom sér vel fyrir í veiðihúsinu. Framundan voru fjórar vaktir, frábær félagsskapur, gott teibl og fjölmargir brandarar á kostnað Eistanna Aleksander Ottokar og Boriss Gubaidulin.

Til að gera langa sögu stutta var veiðin ekki upp á stóra fiska. Einn lax og margir smáir urriðar en veðrið lék við hvern sinn fingur. Þetta er ferð sem verður endurtekin að ári hvort sem það verður í þessa á eða aðra.

Látum myndirnar tala sínu máli.

Read More
Ferðasögur Daníel Eðvaldsson Ferðasögur Daníel Eðvaldsson

Flottir Fimmu Félagar Fóru til Finnlands

Það voru hressir og sprækir fimmu félagar sem fóru til Finnlands 18. maí 2016 ásamt einum maka. Tilefnið var að mæta á aðalfund og árshátíð RT og LC í Finnlandi. Var fundurinn haldinn á Eskifirði Finnlands, Seinäjoki sem er um þrem og hálfum eða fimm tímum norðvestur af Helsinki um klst. frá Vassa.

Mynd-12.jpg

Það voru hressir og sprækir fimmu félagar sem fóru til Finnlands 18. maí 2016 ásamt einum maka. Tilefnið var að mæta á aðalfund og árshátíð RT og LC í Finnlandi. Var fundurinn haldinn á Eskifirði Finnlands, Seinäjoki sem er um þrem og hálfum eða fimm tímum norðvestur af Helsinki um klst. frá Vassa.

Tekið var næturflug með Icelandair til Helsinki þar sem flestir náðu smá kríu enda veitti ekki af fyrir langa daga sem framundan voru. Tóku fjórmenningarnir bílaleigubíl og að sjálfsögðu var bíllinn uppgreitaður enda allir með snertu eða með greiningu að ADHD, hvatvísir og skemmtilegir. Tryggt var að bíllinn hafði stór skott og góðar græjur. Enda tónlistinn hjá Davíð hátt spiluð nánast alla leiðina.

Á fimmtudagsmorguninn tók stór teiblarinn Jari Hekkanen á móti okkur, fór með okkur í morgunverð og stutta skoðunarferð um Helsinki. Það var farið hratt yfir og margt skoðað, að undanskildum einum sem þurfti að versla já og það var ekki Aníta heldur konan í hópnum. Eftir fínt rölt um Helsinki og góðan verslunartrú þá var lagt í hann til Seinäjoki. Með tónlistina í botni, vindinn í hárið og á svörtu þrumunni þeyttist hópurinn til áfangastaðarins. Mikið um sögur, spjall, sprell sem upp skar oft mikinn hlátur. Enginn slasaðist alvarlega á sálinni í þessu góða hóp.

Þegar til Seinäjoki var komið skráðu fjórmenningarnir sig inn á AGM-ið og hótelið. Hittum hópinn og arfaslakann IRO hann Toni 200. Fyrst voru teknir drykkir á barnum og svo átti að labba um 200 til 300 metra leið frá hótelinu að THE LOVE BOAT (sem vil reyndar náðu aldrei af hverju var skýrt því nafni) sem haldið var í drullu dalli sem heitir „Barpuuri“. Það var gamall fljótabátur sem haldin eru partý í og var það fínasta partý.

Föstudagurinn var tekinn nokkuð snemma og farið í ferð sem kölluð var “Seinäjoki By Day” og var borgarrölt. Leiðsögnin var mest á höndum erlendu teiblarana og voru Auðunn og Þórhallur fengnir til að segja frá staðháttum og byggingum. Þórhallur fór með þennan stutta texta nánast utanbókar og Auðunn fór vel úr hendi að klára sinn hluta. Auðunn sagði 100% rétt frá í helming tilfella eins og sannur teiblari gerir og var flottur. Að skoðunarferðinni lokinni var farið í Finnskan hafnarbolta. Fengnir voru þrír leikmenn frá bæjarliðinu ásamt þjálfara. Farið var yfir leikreglur og léttar æfingar teknar. Að því búnu voru teknir leikir milli þriggja liða. Skemmtileg afþreying og góður dagur í 20°C til 23°C hita. Í lok dags fóru menn heim að undirbúa sig fyrir ”Ostrobothnian Feast” eða sveitalarfa partýið. Mjög skemmtilegt partý sem sýnir að Finnar kunna að skemmta sér. Hægt var að slá hokkýpökk í mark, kassabílarallý þar sem braut var sett upp og sex bílar voru, þeir sem ekki voru mikið drukknir gátu farið upp á sjö metra hátt svið og skottið niður af því á loft dýnu, hægt var að kaupa hnífa, já hnífa. Hver er ekki með svoleiðis í föstudagspartýi? Eitthvað sem við íslendingar ættum ekki að læra af vinum okkar í Finnlandi. Að sjálfsögðu fengu þeir þessa fínu hljómsveit og DJ tók við í lokinn. Þeir spiluðu öll vinsælustu lög Finnlands en það virtist vera þema þeirra að hafa bara finnsk lög sem vandist en mjög erfitt að syngja með. Um kvöldið hittum við Hannes þennan fína bónda sem var aldeilis í stuði og mætti í fjósagallanum. Skreytingar voru landbúnaðartæki, mjaltabrúsar frá fyrri tíð, myndir úr hérað sem sýndu landbúnar fyrir 30 árum plús og mikið að heimagerðum teppum. Einnig var gaman að fara inn í rúturnar þar sem frambjóðendur til varaforseta RTFinnland voru með ásamt þeim sem voru með næstu fulltrúaráðshelgar og næsta AGM. Mikil tónlist og gefins áfengi. Þetta voru einar þrjár rútur, einn húsbíll og stór sendibíll. Mikið stuð og mikið gaman.

Á laugardeginum var dagurinn tekinn nokkuð snemma og farið var í heimsókn á aðalfund RTFinnland sem var skemmtilegt. Það kynntu allir erlendu gestirnir sig og einnig voru nokkrir með kynninga um viðburði í sínu heimalandi fyrir RTFinnland, það hefði verið magnað að vera með kynningu frá Íslandi.

Að því loknu var farið í „fjallgöngu“ þar sem hópnum var keyrt upp á hæðsta hól í Seinäjoki og gengum við síðustu 100 metrana. Skemmtilegur dagur þar sem maður náði að kynnast erlendu gestunum. Boðið var upp á ketilkaffi með og án styrkingar. Að því loknu átti að fara í Bannerlunch. Eitthvað klikkaði hann því eftir rúmlega tveggja klst bið var erlendu gestunum boðið inn í hliðarsal þar sem Toni og Kai skiptust á fánum við erlendu gestina, stutt þurrt og leiðinlegt. Það hafði sennilega áhrif öll þessi bið en aðalfundurinn þeirra dróst á langinn og svo var ekki tími til að hitta okkur þar sem að landsleikur Finnlands og Rússlands var að byrja, sem Finnland vann. Því þurfti að sleppa nokkrum atriðum eins og sauna sem ekki var hægt að fara í því að næst tók við forsetafordrykkur í boði bæjarstjórans og varaforseta bæjarstjórnar í Seinäjoki sem haldinn var í Törnävä Mansion. Var fordrykkurinn á fallegum stað, yfirvegaður og fágaður. Þar skemmtu allir sér vel og var góð blanda af LC og RT ásamt erlendum gestum. Vel heppnaður viðburður. Það voru þó ekki allir sem slepptu Sauna því þegar fjórmenningarnir voru prúðbúinn að fara í forsetafordrykk í Törnävä Mansion steig út úr einu herberginu nakinn finni sem ætlaði ekki að missa af sauna fyrir kvöldið. Hann var með hliðartösku með handklæði og snyrtivörum en var klár í gufubaðið enda ekki nema einir 200 metrar af hótelgangi frá herberginu. Hver vefur um sig handklæði fyrir svo stutta göngu. Ekki þóttu strákunum mikið til koma enda vanir að sjá nakta karla en Anítu fannst þetta frekar sérstakt og þrátt fyrir að hneykslast þá flissaði hún nú smá (hátt fyrir þá sem þekkja hana).

Að því loknu fór hópurinn á GALAkvöldið sem heppnaðis vel. Að sjálfsögð var nóg af Finnskri popptónlist, keðjuskipti, engir hnífar þetta kvöldið, dansað á borðum og stólum í galadressinu. Skemmtilegt kvöld sem fór vel fram.

Þrátt fyrir að hafa keypt Brunch og ferðalanganir fjórir úr fimmunni voru klárir að mæta var hætt við hann, Finnarnir sennilega og þreyttir eftir erfiða en skemmtilega daga, var dagurinn tekinn snemma og lagt í hann til Helsinki. Einhverjir versluðu meira, aðrir fóru í rómatíska gönguferð. Auðunn og Davíð fóru svo heim á mánudeginum en hjónin Þórhallur og Aníta dvöldu degi lengur og skoðuð sig um í Helsinki.

Magnaðasti hópur ársins hel ánægður með ferðina og sérstaklega félagsskap hvors annars. Það er frábært að fara saman í svona ferðir og hvetjum við alla þá sem hafa tækifæri til að skella sér í erlenda starfið.

Fjögur flottu úr fimmunni – Auðunn Níelsson, Aníta Pétursdóttir, Davíð Kristinsson og Þórhallur Harðarson.

Ps. Að lokum – nokkrir voru bugaðir á sunnudeginum, þá leggur maður sig bara í lobbýinu:

Það voru ekki allir til í að dansa upp á borðum, þessi var t.d. ekki í miklu stuði.

Mynd-15.jpg

Ef þú hefur lesið alla leið hingað þá er skemmtilegur leikur í gangi. Í pistlinum og fyrirsögninni Flottir fimmu félagar fóru til Finnlands, hvað eru mörg F í því? Verðlaun fyrir rétta svarið sem skrifað er í comment hér fyrir neðan.

Read More