Round Table 9 
Round Table 9 Egilsstöðum
Tileinka - Aðhæfa - Bæta


 Innskrá
   
    
 Muna eftir mér

 Efni
 :: Félagatal
 :: Forsíða
  :: Dagskráin 2009 -2010
  :: Myndir úr starfinu
 :: Fundargerði 07-08
 :: Fundargerðir 09-10

 Tenglar

Round Table Ísland
Ladies Circle Ísland
Roundtable 1
Roundtable 2
Roundtable 3
Roundtable 4
Roundtable 5
Roundtable 6
Roundtable 7
Roundtable 8
Roundtable 9
Roundtable 10
Roundtable 11
Roundtable 12
Roundtable 13
Roundtable 14
Roundtable 15
Roundtable 16

Round Table International
Round Table Bretland
Roundtable 1 Færeyjar


   
Aðalfundur A: Ný og kraftmikil stjórn

Ný stjórn tekin við
>> Lesa meira

 Kynning - 10 sept.

 Jón sá um fína kynningu um lögfræðingastéttina og starf lögmanna í húsnæði Regula í Gömlu Símstöðinni. Það var nokkuð vel mætt og vorum menn margs vísari um nám, störf og hlutverk lögfræðinga, lögmanna, héraðsdómslögmanna og hæstaréttarlögmanna.  Að loknum kynningunni hjá Jóni voru 2 mín þar sem menn ræddu um hápunkta sumarsins þar sem það stóð upp úr að fjórir RT9 félagar stofnuðu Útgerðafélagið MESS. Svo var forseti vor eitthvað að tala um Súrínam og eitthvað svoleiðis J Undir önnur mál voru önnur mál rædd auk þess sem Hilmar og Gulli J minntu á ratleikinn sem verðu laugardaginn 26. September (sjá dagskrá ).

 Eskifjarðaferð

 

Föstudaginn 28. ágúst síðastliðinn var haldið af stað í hina árlegu Eskifjarðaferð í sjóferð til að draga björg í bú og grill. Það var farið á tveimur faratækjum, langferðabíl og skriðdrekanum hans Helga Hummer. Ferðin á Eskifjörð gekk vel og skriðdrekinn rann þetta átaklaust þó farþegar í honum töluðu um að það gæfi töluvert á hann. Þegar á Eskifjörð var komið kom í ljós að lognið fór óvenjulega hratt yfir en það gerði ekkert til því að okkur beið hákarl og ÍSLENSKT VATN að hætti þeirra á Mjóeyri. Þegar Eskfirðingarnir í hópnum höfðu tekið veðrið og gert nýja spá fyrir fjörðinn var ákveðið að fara að grilla. Halli og Halli (samkvæmt dagskrá) grilluðu „heilt“ svín og það var étið með óhemju magni af kartöflusallati og þessu skolað niður með góðum veigum. Félagar okkar úr RT16 mættu og eyddu með okkur kvöldinu og þar sem bar hæðst að menn héldu að Gummi Óla hefði snúið af braut og menn fóru að forðast hann, en sem betur fór var þetta bara leikur í kallinum. Hannibal ákvað í lok ferðar að skoða vélasafnið mjög náið og þegar því var lokið var Heilsugæslan skoðuð.  Að loknum þessum skoðunarferðum var haldið heim á Hérað og viljum við Í RT9 þakka þeim á Mjóeyri og RT16 fyrir frábært kvöld. Halli og Halli ( samkvæmt dagskrá ) þakka fyrir sig.

 

 Golf RT9 2009

Starfið byrjaði í ár með hinu árlega golfmóti á hinum magnaða Ekkjufellsvelli. Eins og venjulega fór mótið fram í blíðskapar veðri eins og lög gera ráð fyrir og menn skemmtu sér hið mesta við að elta blessuðu kúluna um VÍÐAN völl. Ekki verða úrslit tíunduð hér þar sem þau eru löngu gleymd.

 
 Tilvitnun
Meginþáttur allra gáfna er viss tegund viðkvæmni.
— Sigurður Nordal

Vefur Round Table 9 - Allur réttur áskilinn