Forsíða Allar fréttir Veisla í Vaglaskógi
Veisla í Vaglaskógi Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Erlingur Óðinsson   

Erlingur Óðinsson portraitKæru félagar nú er komið að því að nýja heimasíðan er komin í loftið, og er það mér sönn ánægja að fá að byrta fyrsta pistilinn.Margir hafa sent mér pistla á undanförnum mánuðum sem verða byrtir von bráðar á nýu síðunni, endileg sendið mér áfram pistla og myndir.

Mig langaði að segja ykkur frá  frábærri sumarútileigu sem haldin var 19. og 20. júní þar sem yfir 90 manns mættu í Vaglaskóg.



Á föstudeginum eldaði ég hamborgara ofaní hópinn og eitthvað af öli rann ljúflega niður með sem hann Haffi í RT 7 gaf okkur, í eftirrétt voru svo kræsingar frá Sigga formanni RT7.

Á laugardeginum kom Konni RT5 með léttan og lúffengan hádegisverð fyrir alla sem rann ljúflega niður. Eftir það smellti liðið sér í nokkra fótboltaleiki og margir hverjir fóru í sund í góða veðrinu. Laugardagskvöldið var ekki síðra þar sem slegið var upp risa grillveislu og menn skemmtu sér fram á morgun við gítarleik og söng.

Á sunnudeginum vaknaði mannskapurinn í blíðskaparveðri og var ekkert á því að fara að ganga frá til að koma sér heim.

Þetta var frábær helgi sem gleymist seint.

Um síðustu helgi (6-8 ágúst) lögðu nokkrir RT 5-6-7 menn ásamt konum og börnum undir sig fót og fóru á Dalvík. Föstudagurinn fór í að njóta veðurblíðunnar og kvöldið í súpurölt sem endaði á tjaldsvæðinu við gítarsöng langt fram eftir nóttu. Laugardagurinn var tekinn snemma þar sem fiskidagurinn mikkli var haldinn hátíðlegur. Menn borðuðu á sig gat og konur kíktu á markaðina með karlana í eftirdragi. Verslunarfólk ekki svikið með þessa ferðalanga. Semsagt endalaus skemmtun í alla staði.

Ég vona að þið hafið allir átt ánægjulegt sumar og hlakka til að hefja nýtt starfsár með ykkur.

Kveðja

Erlingur Óðinsson RT7

Ritstjóri RTI

 

IMG_0259.jpgIMG_0259.jpg372.66 KB IMG_0260.jpgIMG_0260.jpg333.82 KB IMG_0261.jpgIMG_0261.jpg323.38 KB IMG_0262.jpgIMG_0262.jpg399.75 KB IMG_0265.jpgIMG_0265.jpg317.44 KB IMG_0268.jpgIMG_0268.jpg313.94 KB IMG_0284.jpgIMG_0284.jpg246.12 KB IMG_0286.jpgIMG_0286.jpg324.36 KB

Joomla Templates and Joomla Extensions by JoomlaVision.Com
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 17. ágúst 2010 23:18
 
Joomla template by a4joomla