|
Skrifað af: ritstjori
|
|
Fyrir nokkrum árum birtist á sjónarsviðinu fjölgunarlampinn góði. Þessi gríðarmikli póst-rómantíski lampi með flennistórum barmableikum skermi hefur leikið stórt hlutverk á fulltrúaráðsfundum, bókstaflega.
Hlutverk lampans er einfalt. Sá klúbbur sem hefur hann undir höndum skal finna nýliða fyrir annan klúbb. Verði nýliðinn tekinn inn sem félagi, skal lampinn afhendast þeim klúbbi og skal hann varðveita lampann þar til klúbburinn hefur fundið nýliða fyrir annan klúbb. Sökum stærðar og lágs fegurðarstigs átti lampinn að hvetja klúbba til að losna við hann og þannig efla samstarf klúbba við nýliðun. Því miður hefur takmarkinu ekki verið náð og eftir örfá vistaskipti er lampinn nú í höndum RT6 og hefur verið um nokkurt skeið. Nú er svo komið að lampinn mætti ekki einu sinni á síðasta fulltrúaráðsfund
og áminning um göfugan tilgang hans því hverfandi. Skora ég á forsvarsmenn RT6 að gera bragarbót þar á og búa svo um hnútana að þeir geti afhent nýjum klúbbi lampann á aðalfundinum í vor; í síðasta lagi á haustfundinum í október nk.

|
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 20. september 2010 23:12 |