Forsíða Allar fréttir Heimsóknir Forseta
Heimsóknir Forseta Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Þriðjudagur, 07. september 2010 16:02

Á dögunum var samþykkt breyting á siðareglum hreyfingarinnar, þar sem þeirri kvöð var aflétt að forseti þyrfti að heimsækja hvern klúbb að minnsta kosti einu sinni á starfsárinu. Þótti nefndinni þessi kvöð vera barn síns tíma þegar klúbbar voru taldir á fingrum beggja handa, og kannski ein til tvær tær með. Nú er þessari ábyrgð deilt meðal þriggja stjórnarmanna; forseta, varaforseta og alþjóðafulltrúa.

Röksemdafærslurnar fyrir þessari breytingu eru vel skiljanlegar. Kostnaður sem hlýst af heimsóknum til klúbba ber landsstjórn að fullu og hví ekki að nýta annan mannskap stjórnar þegar aðstæður bjóða upp á, t.d. landfræðilegar?

Ástæða þess að þessi regla var sett inn á sínum tíma, var líklega ekki sú að tryggja að landsstjórn ætti enga sjóði eftir starfsárið, heldur frekar hitt; að tryggja að allir félagar eigi snertiflöt við forseta hreyfingarinnar, ekki einungis þeir sem mæta á fulltrúaráðsfund.

Hlutverk forseta er nefnilega ekki eingöngu að vera fulltrúi Round Table Íslands á erlendum vettvangi og að halda fulltrúaráðsfundi, heldur einnig að vera einstökum klúbbum hvort tveggja fyrirmynd og haldreipi ef brotsjór gengur yfir klúbbinn. Hin flata stjórnskipan, sem Round Table notar á landsvísu, krefst þess að forseti sé sýnilegur hverjum einasta félaga og að öllum félögum finnist þeir eigi aðgengi að forsetanum.

Tel ég nefndina hafa farið offari í kvaðarafléttingu sinni. Eins og reglan er eftir breytingu, þá eru engar hömlur á þessari verkaskiptingu landsstjórnar, og því gæti vel farið svo að forseti á tveggja ára starfstíma sínum heimsækti einhverja klúbba hvorugt starfsáranna. Það veikir tengsl almennra félaga við landsstarfið sem í sumum klúbbum er nógu veikt fyrir.

Ég veit að andi reglunnar er skýr í huga nefndarinnar og fulltrúaráðsins sem samþykkti breytinguna. Hins vegar ber að hafa í huga að hreyfingin er sífellt að endurnýja sig og ekki líður á löngu þar til landsstjórn verður skipuð mönnum sem ekki tóku þátt í að samþykkja þessar reglu og þekkja jafnvel ekki til forvera hennar.

Til þess að tryggja að forseti heimsæki hvern klúbb hið minnsta einu sinni á tveggja ára valdaferli, tel ég nauðsynlegt að viðkomandi regla verði tekin upp á ný og endurskrifuð.

Joomla Templates and Joomla Extensions by JoomlaVision.Com
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 07. september 2010 20:15
 
Joomla template by a4joomla