Forsíða Allar fréttir Sælir félagar
Sælir félagar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Þórhallur   

Sælir félagar
Þetta er alltaf skemmtilegur tími þegar nýtt starfsár fer í gang og eftirvænting félaga orðin mikil hjá sumum svo mikil að það jaðrar við bið eftir jólunum.

Margt er framundan t.d. afmælisfundur hjá RT-1 sem ég hvet félaga að mæta á. Svo styttist í fulltrúaráðsfundinn sem haldinn verður 8. og 9. okt nk. á Eskifirði að þessu sinni. Veit að Lolli og Grétar fara fyrir flottum hópi RT-félaga sem eru að undirbúa þetta „hrikalega“.



Vefurinn er ekki alveg kominn á fullt skrið en það skýrist vonandi á næstu dögum og því höfum við ekki náð að sjá dagskrá hver hjá öðrum.



Undirritaður og ágætur forseti RTÍ fóru á EMATM fund sem haldinn var á Ítalíu nánar tiltekið í Pisa. Var ferðin hin ágætasta þótt kostnaður við fundinn hafi verið í hærri kantinum. Tekist var á um nokkur málefni t.d. atkvæða magn per land per fjölda félaga. Engin niðurstaða náðist í því máli og var henni frestað til RTI fundar sem haldinn verður í Dubai í byrjun okt.



Eins var rætt um málefni Færeyja og ljóst að alþjóðasamtökin líta svo á að Færeyjar séu klúbbur undir RT-Ísland eða þar til að þeir fái formlega inntöku. Verður það eitt af verkefnum landstjórnar að vinna að því að Færeyjar verði teknir inn árið 2011. Umræður sköpuðust um það að hjálpa minni löndum að mæta á NTM fundinn og hefur það nú verið ákveðið að  NTM-sjóðurinn greiði fyrir tvo frá Litáen og tvo frá Færeyjum. Eins er það stefna landstjórna sem standa að NTM að bjóða einum til tveim frá öðrum löndum sem eru mjög fámenn og með fáa klúbba. Ekki hefur verið ákveðið hvaða lönd hljóta þann heiður.



Stutt námskeið var um möguleika á vefnum og rætt um kosti t.d. Fésbókarinnar og Tvittersins ásamt fleiru. Æ fleiri klúbbar eru búnir að færa samskipti af heimasíðum sem er oft dýrar og flóknar yfir á fésbókina og halda þeim lokuðum. Þetta er eitthvað sem við gætum tekið upp á næsta fulltrúaráðsfundi til umræðu en nú þegar eru klúbbar á Íslandi með fésbókarsíður. Umræður voru um kostnað við alþjóðafundi og að þeir þyrftu ekki alltaf að vera á svona fínum stöðum. Grill, þriggja stjörnu hótel og góður Gala á að nægja. Sum löndin eru að reisa sig ansi hátt og flott heitin í fyrirrúmi líkt og var á Ítalíu. Í raun er ég sammála því að óþarfi er að vera á svona flottum hótelum þar sem maður er minnst inn á þeim þar sem dagskrá er yfirleitt þétt og margar uppákomur. Fjölmargt annað var rætt t.d. úthlutun EMA funda oghvort að lönd sem ættu í erjum, deildum eða þess háttar gætu fengið fund. Þá var tekið dæmi um erfiðleika Ísraela að komast til Dubai.


Mikið var spurt út í eldgosið og mikill áhugi var á því ásamt efnahagsástandinu hjá okkur. Var maður nánast klár með stutta og meðalstutta útgáfu á svar á því allt eftir því hvað félagar voru áhugasamir en maður var orðinn helv... leiður á þessu umræðuefni og spurningum.

Til gamans má geta að félagar voru látnir raða sér upp eftir því hvað langt var síðan þeir gengu til liðs við RT og áttu við Íslendingar tvo „elstu“ félagana af öllum sem voru þarna inni, Njál sem hefur verið frá 1994 og undirritaðan sem hefur verið síðan 1995. Flestir höfðu byrjað á bilinu 2001 til 2005.

Nýr EMATM formaður er Lars Vestermann frá Danmörk og EMA Teiblari ársins er Felix Ratgen einnig frá Danmörk frábær félagi sem komst við þegar hann var útnefndur. Það var gaman að við Njáll áttum þá stund með honum enda deildum við borði með honum og Tinu konu hans. „Ferðalangur“ ársins var Marx Refos frá RT Suriname. Í heild var þessi fundur hin skemmtilegasti og persónulega fannst mér fróðlegt að upplifa fund eins og þennan.

En vonandi sé ég ykkur sem flesta á fulltrúaráðsfundi í anda stríðsáranna á Eskifirði í okt.


Kveðja
Þórhallur
IRO 2010-2011

1.jpg1.jpg71.13 KB 10.jpg10.jpg49.27 KB 2.jpg2.jpg42.5 KB 3.jpg3.jpg72.49 KB 4.jpg4.jpg47 KB 5.jpg5.jpg46.62 KB 6.jpg6.jpg65.35 KB 7.jpg7.jpg81.56 KB 8.jpg8.jpg102.52 KB 9.jpg9.jpg116.34 KB

Joomla Templates and Joomla Extensions by JoomlaVision.Com
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 07. september 2010 20:11
 
Joomla template by a4joomla