|
Skrifað af: Þórhallur
|
|
Sælir góðir félagar
EMATM var haldið í Pisa dagana 24. til 27. júní sl. Þann fund sóttu undirritaður og Njáll T. F. forseti RTÍ. Voru þetta ljúfir og góðir dagar á mjög fínu hóteli.
Dagskrá þeirra var fín og ágætis skoðunarferðir. Fullmikið var um pasta þessa daga og þá aðallega sjávarréttapasta með tómat sem var nánast alla daga ásamt Risotto hrísgrjónum í hinum ýmsu útfærslum. Þeir toppuðu þó matseðilinn með því að hafa kalda sjávarréttasúpu, millirétt og svo ofnbakaðan fisk á Galakvöldinu. Enda var gott að fá sér eina 400 gr. steik þegar ég kom til Kaupmannahafnar.
RT-Ísland sótti ekki um EMATM fundinn sem halda á 2012. Var það Belgía sem fékk fundinn og var eina landið sem óskaði eftir fundinum. Voru þeir með ágætis kynningu.
Sjá nánar um ferðina til Pisa í grein sem birt verður á vef RTÍ http://roundtable.is seinna í sumar ásamt myndum.
National Sporting Weekend
Vil hvetja menn að kynna sér RTBI National Sporting Weekend, sem haldið er 3 til 5 september nk.
Níu lið eru skráð og þrjú áhugasöm. Þau sem eru skráð eru Þýskaland, Finnland, Danmörk, Noregur, Suður Afríka, Malta, Frakkland, Austurríki og Eistland. Þau sem eru enn að kanna sinn gang eru Svíþjóð, Lúxembúrg og Belgía.
Þetta er „Men Only Weekend“ með ódýrum bjór, íþróttaviðburðum og öðrum uppákomum.
Verðið er £199 og innifalið er Bed & Breakfast, ásamt íþróttaviðburðum og Gala kvöldverði á laugardeginum. Klæðnaður á Galakvöldi verður „fancy“ klæðnaður frá annarri heimstyrjöldinni (stríðsárunum) en það rímar við klæðnaðinn hjá okkur á fulltrúaráðsfundinum þ.e.a.s. á laugardagskvöldinu á Eskifirði í okt. nk. en þá verður einnig stríðsáraþema sem ég veit að flestir koma til með að taka þátt í, ekki satt?
Þeir sem ætla að taka þátt í golfmótinu eða sjóstönginni þurfa að vera komnir á fimmtudagskvöld þar sem byrjað verður á föstudagsmorgni.
Að endingu þá verður farið í Pre-Tour til Skotlands að kynna sér framleiðslu og hefð á skosku „Whiskey“. En mjög takmarkað framboð er af sætum í þá ferð.
Annars má nálgast frekari upplýsingar hér: http://www.roundtable.org.uk/enews/nsw2/nsw.html og á þessari síðu: http://www.nsw2010.co.uk/
Steve Lord sér fyrir sér í framtíðinni the Olympic Games of Round Table sem mundi ferðast um heiminn og breyta staðsetningum á milli ára. En það er framtíðardraumar og sjáum hvað setur.
Round Table World Meeting 2010 - Dubai Þeir sem hafa áhuga að á koma með á Round Table World Meeting 2010 - Dubai, UAE sem fram fer 29. september til 3 október nk. er velkomið að hafa samband við mig.
Nánari upplýsingar um fundinn er hægt að finna á: http://www.roundtable.name/Events/tabid/59/ctl/Details/Mid/413/ItemID/219/Default.aspx?selecteddate=29/09/2010 og http://www.rti2010.info
RTI World Meeting 2010 29 September - 3 October 2010 Dubai – UAE
Megið þið annars eiga góðar stundir í sumar með fjölskyldum ykkar.
Góðar stundir - Þórhallur Harðarson IRO
|
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 27. september 2010 00:18 |