| Nýji vefur Round Table |
|
|
|
| Skrifað af: Leifur Björn Björnsson | |
|
Nýji vefurinn er ekki aðeins auðveldari í notkun heldur hefur hann ýmsar nýjungar eins og viðburðadagatal, skráningarform fyrir viðburði, og fleira. Einnig er nýtt póstlistakerfi þar sem hver klúbbur getur séð um sína eigin póstlista án þess að þurfa að fara í gegnum vefstjóra með breytingar eins og það var áður. Hver klúbbur fær aðgangsorð til að breyta sínum póstlista eftir þörfum. Ég er semsé að gera starf mitt sem vefstjóra hreyfingarinnar óþarft
með öllu þar sem ritstjórar geta sjálfir sett inn sitt efni og klúbbar sjálfir haldið utanum sínar síður og póstlista. Ég legg
til að titli vefstjóra verði breytt í tæknistjóra hreyfingarinnar á næsta aðalfundi :)
Hýsing á vefnum, nafnaþjónar og póstlistar hafa verið fluttir á einn stað í hýsingu hjá Harðar Harðarsyni í RT-8 sem rekur tölvufyrirtækið Tölvukerfi hf. Við þökkum Herði kærlega fyrir ötult sjálfboðastarf að koma nýja vefnum og póstkerfinu í gagnið og gjafverð á hýsingu kerfisins. Gamli Round Table vefurinn með allar gömlu fréttirnar verður áfram aðgengilegur í upprunalegri mynd í einhvern tíma og verður svo lokað. Það væri mikil vinna að færa allar fréttirnar yfir í nýja kerfið svo við ákváðum bara að hafa gömlu fréttirnar í gamla kerfinu áfram. Áfram Round Table Ísland Leifur Björn Björnsson, ritstjóri og formaður RT-8
|
|
| Síðast uppfært: Miðvikudagur, 11. ágúst 2010 09:50 |







Loksins er nýji vefur Round Table Íslands kominn í gagnið með nútímalegu sniði og auðvelt í notkun. Nú þarf ekki lengur HTML forritar til að setja inn efni og tilkynningar. Allir klúbbarnir fá sín undirsvæði í nýja kerfinu svo klúbbar geta sjálfir séð um sína vefi án mikillar fyrirhafnar.
Nýji vefurinn byggir á Joomla skjalastjórnunarkerfinu sem er ókeypis "open source" hugbúnaður. Joomla býður uppá allskonar einingar jafnt fríarr sem og einingar sem kosta peninga. Allar þær einingar sem ég hef sett upp í vefnum okkar hingað til kosta ekki neitt. Frábært kerfi og auðvelt fyrir læsa og skrifandi menn og konur að læra á kerfið. Ég skora á alla ritstjóra að vera í sambandi við mig og fá sína vefi.