Forsíða Allar fréttir Saltfiskkvöld á Húsavík
Saltfiskkvöld á Húsavík Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Haddur Áslaugsson   


Kæru RT-félagar,
Laugardaginn 10.mars munum við fjarkamenn halda okkar árlega Saltfiskkvöld sem löngu er orðið landsfrægt. Að venju fer það fram á veitingastaðnum Sölku á Húsavík þar sem stjanað verður við bragðlaukana með ýmsum tegundum af saltfis
kréttum.  Í fyrra mættu rúmlega 40 félagar frá 6 klúbbum í veisluna og skemmtu sér að hætti Þingeyinga (sjá meðfylgjandi myndasafn).  

Veislan í ár fer fram eins og áður segir á veitingastaðnum Sölku á Húsavík og hafa matreiðslumenn staðarins sannfært okkur um að einungis iðnaðarsalt í hæsta gæðaflokki verði notað í í saltfiskinn í ár og að mjöðurinn verði Þingeyingum sæmandi. Fagrar meyjar munu þjóna til borðs og teiblarar verða í veislustuði.


Húsið opnar 18:30 og fundur hefst stundvíslega kl. 19:00. Að loknum fundi mun Whitney Houston syngja nokkrar perlur.  Dagskrá auglýst nánar síðar.
Kostnaðinum hefur verið murkað niður í 3.500 á mann og Fosshótel á Húsavík hefur boðið gistungu á 9.000 kr nóttina fyrir tveggja manna herbergi.
Þeir sem hafa áhuga að mæta í veisluna er bent á að hafa samband við varaformann RT4 með því að fylla út skráningarformið hér á síðunni (Skráning á viðburði í aðalvalmynd), senda Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða hringja í síma 896-0066.

Með virðingu og vinsemd,
RT4 Húsavík

 


Myndir Frá Saltfiskkvöldinu í fyrra

RT4 Saltfiskur1.JPGRT4 Saltfiskur1.JPG118.34 KB RT4 Saltfiskur2.JPGRT4 Saltfiskur2.JPG130.55 KB RT4 Saltfiskur3.JPGRT4 Saltfiskur3.JPG131.39 KB RT4 Saltfiskur4.JPGRT4 Saltfiskur4.JPG140.07 KB RT4 Saltfiskur5.JPGRT4 Saltfiskur5.JPG133.33 KB RT4 Saltfiskur6.JPGRT4 Saltfiskur6.JPG118.42 KB RT4 Saltfiskur7.JPGRT4 Saltfiskur7.JPG113.07 KB RT4 Saltfiskur8.JPGRT4 Saltfiskur8.JPG146.64 KB
 

Joomla Templates and Joomla Extensions by JoomlaVision.Com
Síðast uppfært: Föstudagur, 17. febrúar 2012 21:10
 
Joomla template by a4joomla