Forsíða Allar fréttir Framboð til varaforseta-Erlingur
Framboð til varaforseta-Erlingur Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ritstjori   


altKæru félagar

Ég hef ákveðið að bjóða mig framm til varaforseta hreyfingarinnar nú á fulltrúaráðsfundi er haldinn verður þann11. febrúar. 2012.

Ég heiti Erlingur Örn Óðinsson og er formaður RT7 Akureyri. Ég er 31 árs og er giftur Petru Sif Stefánsdóttur, iðjuþjálfa og eigum við tvo syni.

Ég hef verið í hreyfinguni síðan 2008 og hef verið siðameistari, og er nú formaður RT7, einnig er ég ritstjóri RTI.  Í samstarfi við Hadd Áslaugsson vefstjóra RTI höfum við náð miklum árángri með vefsíðuna okkar á

 undanförnum tveimur árum.

Ég er mjög þakklátur að hafa fengið að taka þátt í öllum þessum ævintýrum sem Roundtable hefur uppá að bjóða.

Mín reynsla í erlendu starfi eru númeramót sem ég hef sótt síðan ég byrjaði, fór 2009 til Doncaster, 2010 til Örebu, 2011 á Akureyri og 2012 erum við félagar að fara til Tallin.

Ég mun leggja mikla áherslu á innlenda starfið þar sem árferðið hjá okkur á góða Íslandi hefur ekki verið upp á sitt besta undanfarið og utanlandsferðir verið erfiðar. Mig langar einnig að sýna fram á það að allir geta boðið sig fram í öll embætti landsstjórnar og eiga ekki að þurfa að vera efnaðir til að gegna þessum stöðum.

 

Með framboði mínu stefni ég að því að vinna að framgangi hreyfingarinnar.

Kæru félagar - ég óska eftir stuðningi ykkar.
 
Erlingur Örn Óðinsson RT7, Akureyri.

 


Joomla Templates and Joomla Extensions by JoomlaVision.Com
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 07. febrúar 2012 21:44
 
Joomla template by a4joomla