Forsíða Allar fréttir 3. fundur fulltrúaráðs 2012 - fundarboð
3. fundur fulltrúaráðs 2012 - fundarboð Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Haddur Áslaugsson   


Heilir og sælir RTÍ félagar.

 Fyrir hönd stjórnar RTÍ, boða ég til 3. fundar fulltrúaráðs RTÍ 2011-2012. Fundurinn verður haldinn laugardaginn 11. febrúar 2012 í sal Flugvirkjafélags Íslands að Borgartúni 22, 3 hæð í Reykjavík og hefst hann kl. 09:00.  Jafnframt er boðað til hinnar svonefndu Forhúðar á föstudagskvöldinu 10.febrúar, sem er opin umræðufundur allra félaga í RTÍ.  Fundurinn fer fram á sama stað og fulltrúaráðsfundurinn og hefst kl 20:00.

 Meðal þeirra dagskrárliða sem eru á fundinum er val á varaforseta og IRO (alþjóðafulltrúa)  auk siðameistara og ritstjóra.  Framboðsfrestur til varaforseta og IRO rann út um áramót, en mönnum er heimilt að bjóða sig fram til siðameistara og ritstjóra á fundinum. Þeir sem hafa gefið kost á sér í ofangreind embætti eru:

 Til varaforseta RTÍ:


Erlingur Örn Óðinsson, formaður RT-7 á Akureyri og
Hörður Harðarson, formaður RT-8 í Reykjavík


Til IRO RTÍ:
Einar Birkir Einarsson, núverandi forseti RTÍ

Til siðameistara RTÍ:
Þorgils Þorgilsson, félagi í RT-3 í Reykjavík

Engin hefur enn gefið kost á sér til embættis ritstjóra RTÍ.

Dagskrá sjálfs fundarins er sem hér segir:

  1. Fundur settur.
  2. Tilgangur Round Table lesinn
  3. Kosning fundarstjóra.
  4. Val fundarritara.
  5. Andakt.
  6. Lögmæti fundarins kannað.
  7. Fundargerð 2. fulltrúaráðsfundar RTÍ 2011-2012 borin upp til samþykktar.                                                                 
  8. Ávarp forseta RTÍ.
  9. Yfirlit gjaldkera RTÍ.
  10. Skýrslur embættismanna RTÍ
    1. Vefstjóri
    2. Ritstjóri
    3. Verslunarstjóri.
  11. Skýrslur formanna þverklúbba
    1. Veiðiklúbbur
    2. Mótorklúbbur
    3. Ferðaklúbbur
    4. Góðgerðaklúbbur
  12. Kosningar  til landstjórnar RTÍ:
    1. IRO
    2. Varaforseti.                                                                                   
  13. Kosningar embættismanna landstjórnar RTÍ:
    1. Ritstjóri
    2. Siðameistari.                                                    
  14. Umsóknir um fulltrúaráðsfund í febrúar 2013.                                                           
  15. Önnur mál.
    1. Tillaga Harðar Harðarsonar RT-8 um öflun auglýsingatekna.
    2. Reglur um stuld – áframhald umræðu frá síðasta fulltrúaráðsfundi.
  16. Fundarslit.

 Skipuleggjendur fundarins eru RT8 Reykjavík og RT1 FO í Færeyjum.  Sett hefur verið upp skráningarsíða fyrir ykkur.  Hlekkurinn inn á síðuna er hér http://fs9.formsite.com/leifur/form2/index.html. Skipuleggjendur munu kynna dagskránna, gistimöguleika og aðra nauðsynlega hluti tengda fundinum í tölvupósti til allra félaga og hér á heimasíðunni okkar.

 Fundarboð 3. fulltrúaráðsfundur Roundtable á íslandi
 FUNDARGERÐ 2. FULLTRÚARÁÐSFUNDAR


Sjáumst í Borgartúninu,
Einar Birkir Einarsson
forseti RTÍ


Joomla Templates and Joomla Extensions by JoomlaVision.Com
Síðast uppfært: Laugardagur, 21. janúar 2012 11:46
 
Joomla template by a4joomla