Forsíða Allar fréttir Framboð til varaforseta - Hörður
Framboð til varaforseta - Hörður Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Hörður Harðarson   



Kæru teiblarar.

Eftir miklar pælingar og hvatningar, ákvað ég að bjóða mig fram sem varaforseta Roundtable á Íslandi.  En fyrir þá sem ekki  þekkja mig, þá kemur hér stutt lýsing á kallinum.

Ég er kvæntur Vöku Þórisdóttur, sem er Akureyrar pía.  Við eigum saman tvær stelpur, Rebekku og Elísabetu ásamt tveimur hundum, þeim Káti (Chihuahua) og Alex (Labrador/Setter blöndu).  Ég er fæddur 05.01.1969 og er uppalinn í Reykjavík.

Ég byrjaði í Roundtable 2009 og er í áttunni, þar sem ég  gegni  formannsembætti þetta árið.  Ég starfa sem framkvæmdastjóri hjá Tölvukerfum ehf.. www.tolvukerfi.is

Ég hef verið sem formaður starfsmannafélags Margmiðlunar og Skýrr, þar sem ég fékk mikilvægan lærdóm hvernig hægt er að hlúa að félagsstarfi og gera það enn betra, ásamt því að vinna náið með starfsfélögunum. 

Kæru Roundtable félagar.

Ég óska eftir stuðningi ykkar í starf varaforseta og mun í stað gera allt sem í mínu valdi stendur til að skila starfinu vel frá mér.

Ykkar í teibli.

Hörður Harðarson
frambjóðandi 


Joomla Templates and Joomla Extensions by JoomlaVision.Com
Síðast uppfært: Sunnudagur, 22. janúar 2012 22:44
 
Joomla template by a4joomla