|
|
|
Framboð til varaforseta-Erlingur |
|
|
|
|
Skrifað af: ritstjori
|
|
Kæru félagar
Ég hef ákveðið að bjóða mig framm til varaforseta hreyfingarinnar
nú á fulltrúaráðsfundi er haldinn verður þann11. febrúar. 2012.
Ég heiti Erlingur Örn Óðinsson og er formaður RT7 Akureyri. Ég
er 31 árs og er giftur Petru Sif Stefánsdóttur, iðjuþjálfa og eigum við tvo
syni.
Ég hef verið í hreyfinguni síðan 2008 og hef verið siðameistari,
og er nú formaður RT7, einnig er ég ritstjóri RTI. Í samstarfi við Hadd Áslaugsson vefstjóra RTI
höfum við náð miklum árángri með vefsíðuna okkar á undanförnum tveimur árum.
Ég er mjög þakklátur að hafa fengið að taka þátt í öllum þessum
ævintýrum sem Roundtable hefur uppá að bjóða.
Mín reynsla í erlendu starfi eru númeramót sem ég hef sótt síðan
ég byrjaði, fór 2009 til Doncaster, 2010 til Örebu, 2011 á Akureyri og 2012
erum við félagar að fara til Tallin.
Ég mun leggja mikla áherslu á innlenda starfið þar sem árferðið
hjá okkur á góða Íslandi hefur ekki verið upp á sitt besta undanfarið og
utanlandsferðir verið erfiðar. Mig langar einnig að sýna fram á það að allir
geta boðið sig fram í öll embætti landsstjórnar og eiga ekki að þurfa að vera
efnaðir til að gegna þessum stöðum.
Með framboði mínu stefni ég að því að vinna að framgangi
hreyfingarinnar.
Kæru félagar - ég óska eftir stuðningi ykkar.
Erlingur Örn Óðinsson RT7, Akureyri.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 01. febrúar 2012 21:17 |
|
Framboð til Ritstjóra RTÍ |
|
|
|
|
Skrifað af: Haddur Áslaugsson
|
|
Við sjöumenn kynnum með stolti framboðsefni okkar til
ritstjóra RTÍ.
Jón Ingi Sveinbjörnsson hefur ákveðið að bjóða sig fram sem ritstjóra næstu tvö
árin.
Jón Ingi er 26 ára Húsvíkingur, þjónn að mennt og starfar sem veitingamaður á
Akureyri
Jón Ingi hefur verið í RoundTable, frá 2010 og gaf sig allan í starfið frá
fyrsta degi. Eftir viku í klúbbnum, fór
hann á sinn fyrsta evrópufund og gerði sér lítið fyrir og vann hin eftirsóttu
trúðsverðlaun mótsins. Síðan þá hefur jón
verið mjög virkur meðlimur, mætt á nokkra fulltrúaráðsfundi og gengt ýmsum
embættum innan RT7 ss. að sinna formensku bæði veitinganefndar og hins sívinsæla nuddklúbbs RT7.
við sjöumenn styðjum Jón heils hugar í þetta embætti og hvetjum aðra klúbba til
að gera slíkt hið sama, enda sannur Tableari hér á ferð.
|
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 30. janúar 2012 23:49 |
|
|
Skrifað af: Haddur Áslaugsson
|
|
Kæru félagar, Ég hef ákveðið að bjóða mig fram til siðameistara Roundtable
á Íslandi. Ég byrjaði í Roundtable 4 á Húsavík vorið 2007 og eftir að
hafa eldað þriggja rétta máltíð fyrir klúbbinn þegar ég var tekinn inn ásamt
öðrum skemmtilegum verkum. Ég hef allt frá upphafi verið
þátttakandi í stjórn
klúbbsins, fyrstu árin tvö sem gjaldkeri
svo varaformaður og formaður og gegni núna þetta árið stöðum IRO, hússtjóra, stallara og bjórstjóra. Ég er fæddur í Reykjavík þann fallega dag 19. September 1974
og er sem sagt að nálgast árin 38.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 25. janúar 2012 20:40 |
|
Nánar...
|
|
Skráning hafin á 3 fulltrúaráðsfundinn |
|
|
|
|
Skrifað af: Hörður Harðarson
|
|
Kæru teiblarar.
Þá er skráning hafin á þriðja fulltrúaráðsfundinn 10-11 febrúar. Skráningin er á slóðinni http://fs9.formsite.com/leifur/form2/index.html Drífið nú að skrá ykkur og ganga frá greiðslu. :)
Við erum búnir að birgja okkur vel upp fyrir föstudagskvöldið og er þess vænst að klúbbar fjölmenni á forhúðina. Við erum búnir að gera góðann díl við Hótel Cabin um gistingu sem er í sömu götu og fulltrúaráðsfundurinn, þ.e.a.s. í Borgartúninu. Eins verður stutt að fara í bæinn eftir partýið um laugardagskvöldið. Allt stefnir í þrusu fund eins og vanalega. Hlökkum til að sjá ykkur.
|
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 23. janúar 2012 21:20 |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 18 |