Forsíða
Round Table á Íslandi
framboð til siðameistara Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Haddur Áslaugsson   


Kæru félagar,
Ég hef ákveðið að bjóða mig fram til siðameistara Roundtable á Íslandi.
Ég byrjaði í Roundtable 4 á Húsavík vorið 2007 og eftir að hafa eldað þriggja rétta máltíð fyrir klúbbinn þegar ég var tekinn inn ásamt öðrum skemmtilegum verkum. Ég hef allt frá upphafi  verið  þátttakandi  í stjórn klúbbsins,  fyrstu árin tvö sem gjaldkeri svo varaformaður og formaður og gegni núna þetta árið stöðum  IRO, hússtjóra, stallara og bjórstjóra.
Ég er fæddur í Reykjavík þann fallega dag 19. September 1974 og er sem sagt að nálgast árin 38.

Joomla Templates and Joomla Extensions by JoomlaVision.Com
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 25. janúar 2012 20:40
Nánar...
 
Skráning hafin á 3 fulltrúaráðsfundinn Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Hörður Harðarson   

Kæru teiblarar.

Þá er skráning hafin á þriðja fulltrúaráðsfundinn 10-11 febrúar.  Skráningin er á slóðinni http://fs9.formsite.com/leifur/form2/index.html  Drífið nú að skrá ykkur og ganga frá greiðslu.  :)

Við erum búnir að birgja okkur vel upp fyrir föstudagskvöldið og er þess vænst að klúbbar fjölmenni á forhúðina.   Við erum búnir að gera góðann díl við Hótel Cabin um gistingu sem er í sömu götu og fulltrúaráðsfundurinn, þ.e.a.s. í Borgartúninu.  Eins verður stutt að fara í bæinn eftir partýið um laugardagskvöldið.  Allt stefnir í þrusu fund eins og vanalega.

Hlökkum til að sjá ykkur.

                                         

Joomla Templates and Joomla Extensions by JoomlaVision.Com
Síðast uppfært: Mánudagur, 23. janúar 2012 21:20
 
3. fundur fulltrúaráðs 2012 - fundarboð Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Haddur Áslaugsson   


Heilir og sælir RTÍ félagar.

 Fyrir hönd stjórnar RTÍ, boða ég til 3. fundar fulltrúaráðs RTÍ 2011-2012. Fundurinn verður haldinn laugardaginn 11. febrúar 2012 í sal Flugvirkjafélags Íslands að Borgartúni 22, 3 hæð í Reykjavík og hefst hann kl. 09:00.  Jafnframt er boðað til hinnar svonefndu Forhúðar á föstudagskvöldinu 10.febrúar, sem er opin umræðufundur allra félaga í RTÍ.  Fundurinn fer fram á sama stað og fulltrúaráðsfundurinn og hefst kl 20:00.

 Meðal þeirra dagskrárliða sem eru á fundinum er val á varaforseta og IRO (alþjóðafulltrúa)  auk siðameistara og ritstjóra.  Framboðsfrestur til varaforseta og IRO rann út um áramót, en mönnum er heimilt að bjóða sig fram til siðameistara og ritstjóra á fundinum. Þeir sem hafa gefið kost á sér í ofangreind embætti eru:

 Til varaforseta RTÍ:

Joomla Templates and Joomla Extensions by JoomlaVision.Com
Síðast uppfært: Laugardagur, 21. janúar 2012 11:46
Nánar...
 
Febrúarfundur í Reykjavík Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Einar Birkir   

Kæru teiblarar.

Það hefur orðið að samkomulagi að RT1 FO í Færeyjum með aðstoð RT8 í Reykjavík munu halda næsta fulltrúaráðsfund í Reykjavík helgina 10-12 febrúar næstkomandi.  Eins og flestir ykkar munið þá var RT1 FO valinn til þess að halda febrúarfundinn, en vegna kostnaðar við flug til Færeyja var útlit fyrir að einungis um helmingur fulltrúaráðsins sæi sér fært að mæta.  Það varð því niðurstaðan að halda fundinn í Reykjavík og þannig gera mun fleiri félögum kost á að taka þátt.

Á fundinum verða margar mikilvægar ákvarðanir teknar og má þar m.a nefna:

Joomla Templates and Joomla Extensions by JoomlaVision.Com
Síðast uppfært: Mánudagur, 12. desember 2011 14:19
Nánar...
 
Keilufundur RT4, RT5 og RT7 - Myndir Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Haddur Áslaugsson   


Keilufundur RT4, RT5 og RT7 var haldinn í Keilunni á Akureyri sl. föstudagskvöld.  Húsvíkingarnir klikkuðu ekki frekar en fyrri daginn og fjölmenntu á svæðið í langferðabifreið, með Jónas veitingamann bakvið stýrishjólið.  Skemmst er frá því að segja að eftir æsispennandi keppni, þar sem sumir fengu fleiri tilraunir en aðrir og enn aðrir fleiri bjóra og skot en aðrir, þá þurftu menn að játa sig sigraða fyrir geisisterku liði RT5.  Það leit því allt út fyrir það að RT4 þyrftu að láta af hendi stórglæsilega farandbikar, til fimmu manna, en með einhverri undraverðri ólukku tókst þeim að tína bikarnum, þegar skammt var liðið á fundinn.

Joomla Templates and Joomla Extensions by JoomlaVision.Com
Síðast uppfært: Mánudagur, 31. október 2011 18:44
Nánar...
 
Síða á Ensku Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Haddur Áslaugsson   

Sælir félagar. Langaði að benda á að nú er komin í loftið síða, á ensku, fyrir Round Table á Íslandi, „en.roundtable.is“ Það er því tilvalið, ef klúbbar eða einstaklingar vilja senda eitthvað frá sér á ensku að senda grein á ritstjórann Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Ég vil líka í leiðinni hvetja menn til að senda ritstjóranum greinar frá klúbbastarfinu, eða einhverju öðru skemmtilegu.

kv. Haddur vefstjóri

Joomla Templates and Joomla Extensions by JoomlaVision.Com
 
Framboð til varaforseta - Hörður Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Hörður Harðarson   



Kæru teiblarar.

Eftir miklar pælingar og hvatningar, ákvað ég að bjóða mig fram sem varaforseta Roundtable á Íslandi.  En fyrir þá sem ekki  þekkja mig, þá kemur hér stutt lýsing á kallinum.

Ég er kvæntur Vöku Þórisdóttur, sem er Akureyrar pía.  Við eigum saman tvær stelpur, Rebekku og Elísabetu ásamt tveimur hundum, þeim Káti (Chihuahua) og Alex (Labrador/Setter blöndu).  Ég er fæddur 05.01.1969 og er uppalinn í Reykjavík.

Joomla Templates and Joomla Extensions by JoomlaVision.Com
Síðast uppfært: Sunnudagur, 22. janúar 2012 22:44
Nánar...
 
Ferðasaga NTM 2011 - Álaborg Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: ritstjori   

Plains, Trains, automobiles and...........

Fimmtudagur

Dagurinn fór að mestu í að koma sér á rétt póstnúmer í Danmörku.  Ferðalagið hófst á því að pikka upp einn af klúbbfélögum mínum á Álftanesinu.  Hann taldi sig vera í mun betri málum en ég var, þar sem að hann flygi með því virðulega flugfélagi Icelandair, en ég fór með Express on Ice.  Það kom nú ekki að sök, en það skondna í þessu var þó að síðar um daginn komst ég að því að herbergisfélagi minn – sem kom reyndar úr öðrum klúbbi var samferðamaður minn, án þess þó að við gæfum okkur fram við hvorn annan.  En nóg um það.  Flugferðin var hin prýðilegasta, þar sem að flugstjórinn í þessari ferð var greinilega Captain funny.  Bað viðstadda vinsamlegast um að hafa sætisbeltin spennt öllum stundum, því hann hafði fengið sér aðeins í tána kvöldið áður, og vissi ekki um flughæfileika sína.  Reytti nú af sér eitthvað í viðbót af bröndurum, sem kætti mannskapinn all verulega, og hlaut lófaklapp fyrir vikið.  Sló svo út með því þegar aðflug til Köben hófst, að biðja viðstadda vinsamlegast um að hafa alla glugga lokaða, því fyrir utan væri 57 gráðu frost!!

Joomla Templates and Joomla Extensions by JoomlaVision.Com
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 09. nóvember 2011 09:04
Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 10
Joomla template by a4joomla